My side ,,Diana´´

Minn furðulegi heimur:)

04.06.2008 23:04:28 / didiarnar

Komst inn.... JIBBÍ JEI!!!

Ég hef ekki skrifað hérna óralengi en ákvað samt að skrifa fregnirnar hingað inn.

Ég er sem sagt á leiðinni í Kennaraháskóla Íslands næsta haust, það er að segja núna í ágúst. :haha:
Ég var að sjá að ég komst inn, bara geggjað 8|
Þetta verður samt ekki auðvelt því ég ætla að vera í 80% vinnu með og vera í fjarnámi plús að sjá um drenginn og svona. En ég á góða að svo ég hef engar áhyggjur ;)
Já ég er sem sagt að fara í Þroskaþjálfann :)

Annars er bara gott að frétta héðan.... ég er sem sagt að vinna hálfan daginn á leikskólanum, þannig að þeir feðgar sofa bara til nánast hádegis og þá kem ég og tek guttann og er rosa fjör hjá okkur.. En þetta er samt æði að geta eytt tímanum með þeim. Auk þess að Egill er alveg ekki vinna meir plíss hehe en hann spjarar sig samt mjög vel;) 
Ætla samt örlítið að láta hann hafa fyrir  þessu og vinna tvær vikur fyrir sumarfrí allan daginn.

Jæja læt þetta duga núna.
Kv. Díana Ósk


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 21:41:09 / didiarnar

Svaka breyting sé ég!

Já vá það er aldeilis hvað ég hef engan vegin verið dugleg hérna.
Sé að það er ansi langt síðan síðast þar sem allt saman er orðið voðalega eitthvað öðruvísi hérna inni. Bara búið að breyta öllu systeminu hérna, það er nú meira.

En jæja ég heilsa þá bara og bið ykkur hjartanlega velkomin á þetta blogg sem kom loks úr höndum og höfði mér hahaha 8| ég er nú meiri bullarinn.

En já sem sagt get sagt að það hafi verið mikið að gera hjá mér undanfarið en ég fór í jaxlatöku fyrir um tveimur vikum og nokkrum dögum fyrr í aðra aðgerð svo er bara brjálað að gera með litla orkuboltann minn. :d Sá stóri er orðinn algjör orkubolti, maður er bara á fullu daginn út og inn sko.Algjör breyting á honum. Ef ég legg hann á gólfið er hann komin á magann áður en ég veit af og þá kvartar hann sko - honum finnst ekkert gaman á maganum. Og hann rífur og tætur í allt, hendurnar alltaf að leita að einhverju að toga í haha og verður hárið á fólki mjög oft fyrir barðinu :haha: Svo bara mjög kátur og hress ungur drengur ;)

 En annars er ég orðin mjög pirruð á þessu veðurfari og vona að það fari að verða hlýrra. Það var nú samt ágætt í dag eða það besta í MJÖG langan tíma, ég gat loksins farið með vagninn. Ohhh hvað það gerir fyrir mig, bara allt, ég hef verið svo þreytt eitthvað og bara mjög leið á því að vera endalaust inni, svo á morgun ætla ég að labba í norðurbæinn í mömmuhitting og njóta veðursins þó að það verður rigning. Aðalatriðið er að ég næ að labba með vagninn. Skítt með nokkra skafla, bara að það sé ekki snjór nákvæmlega alls staðar eins og svo oft áður og ekkert svo ofsalega mikil hálka.

Jæja ekki vil ég skrifa allt í eina færslu svo ég bíð með meira fyrir betri tíma :haha:
See yall enjoy




» 3 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 16:36:37 / didiarnar

Nýtt ár! :)

Jæja kominn tími á færslu sé ég8)

Svo mikið búið að gerast hjá okkur en kallinn orðinn svangur svo ég verð ekki með þetta langt í þetta skiptið.

En við höfðum það bara gott yfir hátíðirnar og fullt af pökkum hérna handa litla gaur og bara æðislegt í alla staði. Fórum í tvö jólaboð á jóladag og gekk bara rosa vel. Já hef eiginlega ekkert um hátíðirnar að segja nema það að það var bara allt fínt og náðum við að hafa það gott og slaka vel á ;)

En svo byrjuðum við í ungbarnasundi í morgun og var rosa gaman :D  Adam var rosa ánægður og gekk bara vel. Já aldrei verið eins ánægður í sundi eins og í morgun. Brosti allann hringinn. 8|

Bara stuð.

 

Kv. Díana Ósk  


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 23:42:05 / didiarnar

Gleðileg Jól

Gleðileg Jól       

og farsælt

komandi ár

 Kæru vinir, 

 

Sjáumst hress og kát á nýju ári. 

Jólakveðja:

                 Díana Ósk,

Egill Fannar og Adam Óli 

  
 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 13:48:49 / didiarnar

Jæja

Jæja ég ætlaði að vera löngu búin að skrifa hérna inn en svo bara svo mikið að gera svona rétt fyrir jól. Var að klára að gera sörurnar í gær rosa fínar og bragðgóðar :D Jamm gaman að eiga eitthvað svona gott yfir jólin.

En ég þarf svei mér þá að vera dugleg að taka til núna þar sem ég ákvað að taka til úr tveimur pokum sem ég hef ekki verið nógu dugleg við þannig að ég sturtaði úr þeim í stofunni og það er allt í klessu, best að fara að koma sér að verki ;)

En hjá okkur gengur bara ágætlega, jólin að koma svona hægt og rólega. Þó maður var nú komin í gott jólaskap í síðustu eða þar síðustu og svo fór það bara algjörlega en bæði mjög leiðinlegt að vinkona mín lést fyrir viku síðan þannig að það hefur sett svip sinn á jólaundirbúninginn og aðeins degi seinna eða þá um nóttina eftir sólarhring eða hérumbil lést frændi minn. Reyndar ekkert náskyldur en ég þekkti hann nú þó. Var nýbúin að sjá hann í sumar og var hann þá voða hress. Ohh það er alltaf svo leiðinlegt þegar fólk fellur frá. En ég er nú samt ánægð með að þau þurftu ekki að þjást létust bæði í svefni að mér skilst. :|

 En oh my god Adam Óli sefur úti núna sem er ekki frásögu færandi nema að á laugardaginn skruppum við Egill í búðir þannig að við létum hann útí vagn og svaf hann fyrir utan hjá mömmu og pabba. Svo sóttum við hann og hafi hann sofið í um það bil tvo og hálfan tíma. Gaf ég honum þá að drekka og lagði svo aftur af stað heim með hann í vagninum og hélt hann myndi ekkert sofan nema kannski örstutt en hann svaf í rúmlega þrjá tíma. Ég var svo hissa þegar ég kom heim úr heimsókn úr vogunum. 

En svo á Eliná afmæli í dag ef þú lest þetta þá TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ:haha:  þó ég býst nú ekki við því. En ætli maður kíki ekki eitthvað út í kvöld með henni og svo kemur Hildur til landsins í dag.

En ég segi þetta gott í dag, ætla að vera dugleg í jólahreingerningum, það er að segja ef mér tekst að ná venjulegum óhreinindum fyrst.

kv. Díana Ósk  


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 00:56:56 / didiarnar

villa

Jæja þið eruð bara heppin. Ég var búin að vera hérna í um hálftím að skrifa huge langt blogg um erfiðin mín þessa dagana, útaf leiðinlegum ástvinamissi og svo datt allt út.

Bömmer svo ég nenni ekki að skrifa núna kannski á morgun.

Bæjó  


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 21:59:17 / didiarnar

smá update

Ákvað að skrifa hérna þar sem ég sá að hún Jóna hafði skrifað comment. Jamm ég sé bara engan tilgang að skrifa þetta ef enginn les það.

En hjá okkur er svo sem ekki mikið að frétta bara eiginlega same old same old :lol:  En samt allt gott. Bara að fara að koma jól, þau styttast með hverjum deginum oh my god maður áður en maður veit af eru þau komin.

En jú er aðeins byrjuð smá búin að baka en ætla þó að baka meir sjá hvort mér takist að baka sörur. Svo er ég á fullu í jólahreingerningum, er alveg búin á því eftir daginn, skúraði allt hátt og lágt og svona setti í einar tvær vélar og gekk frá fötum og svona. Og svo svaf adam aðeins í rúmlega klukkutíma og ég labbaði úti með pílu hálftíma af þeim tíma. Svo þetta er ekki auðvelt hehe 8| allavega var hann ekki á því að leyfa mér að skúra í dag. Ég lét hann upp í rúm með leikgrindina af leikteppinu yfir sig og svona hálfgerða bók með fullt af myndum í kringum höfuðið á hann og svo leikfang með hringlum og svona, þannig að hann átti að hafa nóg að gera en nei hann tolldi í 10-15 mínútur  en annars grét hann en hey mér tókst þetta nú er ég bara alveg búin á því og ætla í sturtu.

Ætla nú ekki að hafa þetta langt, skrifa eitthvað meira og skemmtilegra næst. Bara smá hugrenningar og bull í mér núna. Já og svo skreytti ég aðeins í dag komin í smá jólaskap :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 15:03:52 / didiarnar

sé ekki annað en soninn :)

Jæja Þá er litli guttinn orðinn 3ja mánaða tíminn flýgur aldeilis. En já við sjáum bara ekki annað en hann, hann er svo mikil dúlla - endalaust fjör í kringum hann ;) Hann bræðir allt og alla þegar hann brosir svo breitt :D

En jú auðvitað geta sum kvöld verið erfið eins og í gær oh mæ, hann var crazy ég var líka þreytt eftir daginn þar sem hann lá bara á beit nær allan daginn og þess á milli vældi hann en þó með smá hléum en vá hvað maður varð þreyttur. Ég er búin að vera í nammibindindi og kókbindindi svona að ég fæ mér aðeins á föstudögum og laugardögum en ekki hina dagana og ég algjörlegea féll í gær, varð bara svo þreytt og varða að fá orku svo ég bara skellti mér í nammið.

En annars er svo sem ekki mikið að gera hjá mér, bara njóta lífsins og kíkja í vinnuna og hitta fólk og svona. Jamm smá öðruvísi að mamma og pabbi séu ekki heima, þau eru í Orlando. En finn svolítið fyrir því þegar Egill er að vinna lengi frameftir því að þá er ég vön að hringja í mömmu og biðja hana að skutlast eitthvað með mér en í staðin er ég með bílinn þeirra svo það kemur sér ansi vel allavega í hittinga og svona 8) 

En ég jæja best að fara að fá sé eitthvað að borða er að kálast.

kv. Díana Ósk  


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 23:33:27 / didiarnar

Bara rólegt hér á bæ!

Heyrðu þetta reddaðist víst allt saman, ég labbaði bara í norðurbæinn i "góða veðrinu"8| Jamm bara svolítið blaut en enginn er verri þótt hann vökni eða hvernig sem þetta nú er. Fór svo til ömmu í bakaleiðinni og sú var glöð að sjá Adam sinn ;) Alltaf gaman að sjá hana þarf bara að hitta hana oftar.

En já ákvað bara aðeins að skilja eftir smá innlegg hérna, bara lítið í þetta skiptið8)

En já Jóna þú þarft að fara að vinna í klónuninni, vil fara að hitta þig ;) Jæja skemmtu þér úti, hafðu það sem best.

En af okkur er bara gott að frétta, er farin að sofa mjög vel sem er æði þar sem drengurinn sefur frá svona 10 á kvöldin til 7-8 á morgnana oftast ekki slæmt það :D

En já kveð i bili.

See y'all later


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 07:59:36 / didiarnar

Skírnin

Jæja þá er búið að skíra litla prinsinn og fékk hann nafnið Adam Óli :D Já finnst það henta honum vel. Vonandi verður hann allavega ánægður með það, þetta er svona öðruvísi nafn en samt ósköp venjulegt 8)

Skírnin heppnaðist mjög vel og var ég mjög ánægð með hana. Við vorum með kirkjuna alveg útaf fyrir okkur og skírði tengdapabbi barnabarnið sitt ;). Mamma og tengdamamma voru skírnarvottar og voru mjög ánægðar með það. 

Adam Óli var mjög rólegur í kirkjunni, en var reyndar ekkert ýkja ánægður með að afi var að skvetta vatni á hann hehe :$  en ekkert mikið samt. Komum svo heim í veisluna, skipti á honum og gaf honum að drekka og stuttu seinna var hann sofnaður svo hann var nú ekki lengi í sinni eigin veislu. Svo sem ekki hægð að ætlast til að hann vaki lengi svona ungur :lol: Það komu um 60 manns í veislu að sjá litla guttann og voru alveg fullt af kræsingum á borði hjá okkur, þannig að það var alveg heilmikið til og svolítið afgangs samt ekkert brjálæðislega mikið svo ég hugsa að enginn hafi farið svangur heim, það væri nú bara slæmt þvi ég bannaði það bara alfarið :haha:

Já svo var bara legið í leti næstu 2-3 dagana. :$  Svo sem í lagi þar sem mikið var um að vera síðustu dagana í undirbúningi.

En mér sýnist ég vera veðurteppt 8|  ég ætlaði mér að labba í norðurbæinn og hitta krílin úr vinnunni og mæður þeirra en það er bara svo rosalegur vindur og svolítil rigning að ég er ekki viss um að ég komist neitt. En vonandi verður þetta skárra eftir klukkutíma, tékka á veðrinu þá - ætlaði að leggja af stað þá. Svo var ég líka löngu búin að ákveða að prófa strætó systemið hérna og sjá þegar toysRus opnar, uuu mig hlakkar svo til. En alveg týpískt samt að þetta er ekkert í samanburði við bandaríkin, þvi þar hef ég sko farið í toys r us og er það sko gaman hehe smá barn í mér enn, en líka gaman að sjá hvort það sé eitthvað dót fyrir hann Adam ;)

Jæja vonandi lægir bara til, því úti er þetta eins og stormur nánast þetta er svo mikill vindur:!:

kv. Díana Ósk  


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.10.2007 00:23:34 / didiarnar

uhuu Bílinn minn!!!

Svei mér þá haldiði ekki að ég hafi hent bílnum mínum í gær. 8|Oh my god hvað það er skrítið. Já aldeilis skrítið að vera bíllaus núna svona nokkurn vegin. Ég var nú hætt að nota hann,hafði kannski notað hann 2-3 síðan í júlí, hann var að detta í sundur, svo mikil læti í honum og alls ekki mönnum sæmandi lengur. En ég græddi nú meir á því að henda honum en að selja hann, því komst ég að. Já fékk 15 þús fyrir að skila númerinu og svo fékk ég til baka úr tryggingunum. Ekki slæmt það :D Þá er bara að sjá hvernig við komumst af bara með einn bíl veit að það ætti að reddast til áramóta en það verður öðruvísi, þrátt fyrir að við höfum lítið notað hann að undanförnu þá var hann samt svona til vara, má öryggistól -- samt varla hægt að segja það þar sem hann var orðinn svolítið hættulegur, hefði ekki þorað að vera með drenginn í honum :$

En jæja þetta er svosem viss léttir, fannst mjög leiðinlegt að keyra hann síðast þegar ég gerði það, svo mikil læti í honum 8|

Jæja þá er komin helgi, vonandi hafið þið það gott um helgina, Góða helgi.

kv. Díana Ósk  


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 00:23:33 / didiarnar

my life goes on

Jæja ákvað að skrifa nokkur orð hérna inn.

Svo sem ekkert brjálæðislega nýtt að frétta. En samt svona aðeins.

Litli minn er aldeilis farin að reyna á þolinmæði móður sinnar hehe allavega í dag. Jamm í gær svaf hann einungis í klukkutima í vagninum og ég var ekki alveg að skilja það þar sem hann er vanur að sofa í 3-4 tíma í senn. En þá tók ég hann skipti á honum og gaf honum að drekka og setti hann svo aftur út í vagn, svona um klukkutíma eftir að hann vaknaði og svaf hann þá í 3 tíma en í dag var annað upp á teningnum. Sem sagt hann ákvað að gera það sama og sofa bara í klukkutíma í vagninum en þá ákvað ég bara að gera það sama og skipta á honum og gefa honum að drekka en ákvað að sjá hvernig hann væri inni. Við reyndum að hafa það kósý og svona tókst ágætlega, hann dottaði kannski í mesta lagi hálftíma og fórum við mamma svo í bíltúr og gat hann svo lagt sig í honum, svo það hefur hjálpað honum en samt skilur maður ekki hvernig hann gat þolað kvöldið. Sem sagt allt kvöldið eða frá 6-10 var hann ekki beint ánægður ég gaf honum að drekka á kannski klukkutíma fresti og stundum styttra og svo sofnaði hann og ég hélt að hann myndi þá gefa okkur frið (var sko með vinkonur mínar hjá mér) en nei í hvert skiptið þegar ég lagði hann frá mér vaknaði hann annaðhvort við það að ég lagði hann frá mér eða 10 mínútum seinna. En svo um 10 leytið loksins sofnaði hann. Ég ákvað þá að leggja hann í rúmið þó hann væri vakandi og hann sofnaði þá bara sjálfur, vonandi sefur hann bara vel og lengi núna;)  Já svona var kvöldið mitt.

Ætlaði nú ekki að koma með svona detail af kvöldinu mínu en mátti til þar sem hann er svo rólegur drengurinn minn en svo kom þetta upp á, svo jafnvel hann getur tekið upp á ýmsu. En ætli þetta hafi ekki bara verið vaxtakippur, við skulum vona það. Allavega að þetta verði betra næstu daga :haha:

Jæja þá fer að styttast í skírnina. Hann fær nafn 14. október og verður hann skírðu í fríkirkjunni af afa sínum 8)

kv. Díana Ósk  


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.09.2007 01:04:09 / didiarnar

Jibí Jei

Jei það nennir einhver að lesa bloggið mitt, ég hélt barasta að enginn væri að kíkja hingað inn.

Ég kíkti nú sjálf hérna svona nokkrum sinnum í mánuði og tékkaði á commenti en þar sem ekkert var og ekkert í gestabókinni heldur þá nennti ég ekkert að standa í því að skrifa. En núna er ég búin að komast að öðru, ekki slæmt það 8)

Jæja ætlaði bara aðeins að láta vita af mér. Ekki mikið núna. Bara venjulegt hér á bæ. Öllum líður vel og ég er þessa dagana að springa úr stolti yfir syni mínum, sé ekki ljósið fyrir  honum ;)  Hann er einfaldlega fallegastur :haha: Jamm bara þetta bros bræðir hvern sem er, svo fallegt.

En jæja við erum farin að fara svolítið á flakk eða svona aðeins, hann hefur komið nokkrum sinnum með ömmu sinni í bíltúr og við kíkt í nokkrar búðir eða svona það nauðsynlegasta, þá öll þessi afmæli sem eru í gangi eins og til dæmis bróðir minn á morgun. 

Og já svo fórum við að hitta krílin í vinnunni á fimmtudaginn, ekkert smá gaman. Gleymdum okkur alveg, kíktum rétt fyrir 12 á hádegi og svo var klukkan allt í einu hálf fjögur og við fórum örlitið seinna. Já elsta er 5mánaða og yngsta 10 dögum yngri en litli pjakkurinn minn :D  Það er já ein stelpa og 3 strákar í þessum hóp. Og svo höfum við einu sinni farið að sjá ágústkrílin sjálf. Og var það líka mjög gaman svo hann er nú búinn að hitta aldeilis marga á sínu reki þó hann sofi nú í gegnum mest megnið af því hehe :lol:

Jæja ætli maður reyni ekki að fá smá svefn áður en hann vaknað til að dreka smá.

See y'all  


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 22:26:57 / didiarnar

Nánast dauð síða!

Jæja jæja

Það er nú mikið búið að ganga á í lífi mínu síðan ég skrifaði síðast. Ég hafði oft pælt í að skrifa aftur en þar sem engin comment komu á síðustu færslu mína var ég ekki að nenna að skrifa, hélt bara að enginn væri að fylgjast með en núna komust við að því fyrir fullt og allt, ef einhver skrifar núna þá held ég áfram með síðuna annars ekki.

En eins og þið sem þekkið mig vitið þá er margt búið að gerast i lífi mínu undanfarið. Ég er búin að eignast fallegata dreng í öllum heiminum :haha:  Sem var þann 9ágúst og er nú ein af ástæðunum að ég hef ekki skrifað hérna, en er nú með síðu fyrir hann og hef verið duglegri þar 8)  sem er nú kannski ekki skrítið. En já það hlýtur að vera skiljanlegt:lol:

Jæja þegar maður byrjar að skrifa ætlar maður að vera svo duglegur og skrifa svo mikð en svo þegar maður er byrjaðu þá bara stoppar allt og  það sem ég ætlaði að segja er ekki enn til staðar. Nú jæja enda samt öruglega á að skrifa allt of mikið :)

En með drenginn þá erum við rosa heppin með hann, hann er yndislegur. Fallegastur í heiminum, já sé ekki  ljósið fyrir honum :D  En hann er rosa duglegur að stækka og þyngjast sem sagt drekkur vel. Er með hann á brjósti og gengur vel. Hann var sem sagt 16 merkur og 52 cm þegar hann fæddist, bara stóð og stæðilegur drengur. Og gekk fæðingin vel fyrir sig. Egill var heima hjá okkur í mánuð og er svo farinn að vinna aftur og við bara heima að hafa það kósý. Samt alveg brjálað að gera, í þessum þvotti og svona en þrátt fyrir að hann sé rólegur þá finnst honum óskaplega gott að láta halda á sér og því er ekki hægt að þvo þvott eða ganga frá nema hann sé sofandi þó ég held að það sé að koma ;) hann allavega hafði óskaplega mikinn áhuga á "bók" sem ég keypti fyrir hann á föstudag :D

En annars er svo sem ekki mikið að frétta, það fer að styttast í að litli gaur fá i nafn. En hann fær nafn 14 október og þá verður nú gaman að geta kallað hann nafninu sínu en ekki bara litli pjakkur eða þvíumlíkt.

En nú skulum við sjá hvort þessi síða lifir eitthvað :P

kv. Díana Ósk  


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 11:16:08 / didiarnar

Betra seint en aldrei

Jæja það er komin heil öld síðan ég skrifaði síiðast, en lítið að frétta svo sem.

Fórum jú til Boston yfir páskana og var það æðislegt en bara mætti vera heitara, það var svei mér þá kaldara þar heldur en á Íslandi en samt ekki mikill munur.

Já óléttan gengur bara vel, kominn svolítill spenningur í mann. Frábært að finna fyrir lífinu inni í sér ;)  á fleygiferð þarna inni :D Bara gaman. En já hef bara verið nokkuð heppin, aðeins bakverkir og fæturnir hafa líka verið að pirra mig en Þó ekki það mikið. En átti þó alveg von á að bakið myndi láta heyra í sér því ég er nú ekki góð í baki fyrir :S En svona er þetta. Tók reyndar að mér skúringar í vinnunni og ætli það hafi ekki bara gert illt verra fyrir bakið, en það fer nú senn að vera á enda. Ég ákvað að hætta í því í enda maí :!: Svona til að drepa sig ekki alveg.

En nú er sumarið að koma loksins og ég held barasta að ég sé komin í smá sumarfíling - held ég fari bara í kjól í dag 8) 

Jæja until next time

Gleðilegt sumar :haha: 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9